|
|
|
|
 |
Þjónusta
Auk þess að flytja inn og selja bílrúður ásamt fylgihlutum þeirra, rekur Orka eitt besta bílrúðuverkstæði á landinu þar sem fagmenn eru að störfum.
Meðal viðskiptavina verkstæðisins eru m.a. stærstu tryggingafélög landsins, fyrirtæki og einstaklingar.
Á verkstæðinu er skipt um fram- og afturrúður bíla auk þess sem framkvæmdar eru viðgerðir á framrúðum í þeim tilvikum þar sem slík viðgerð er framkvæmanleg. Með nýrri tækni, sem hefur verið að ryðja sér til rúms á markaðnum, má nú gera við minni tjón á framrúðum bíla án þess að slegið sé af kröfum um gæði og endingu rúðunnar.
|
|