Pantanir

Við tökum á móti pöntunum símleiðis í síma 586 1900, með símbréfi í faxnúmer 586 1903 og með rafrænum hætti á netfangið framrudur@simnet.is.

Æskilegt er að pöntunum fylgi allar nauðsynlegar upplýsingar um þann sem pantar, nafn, kennitala, heimilisfang og símanúmer. Einnig óskir um afhendingar- og greiðslumáta.

Þegar um er að ræða bílrúður er nauðsynlegt að komi fram skráningarnúmer, nafn framleiðanda, tegundarheiti og árgerð. Einnig ef óskað er eftir öðru en staðlaðri gerð af viðkomandi rúðu (litaðri / polarized / upphitaðri) þarf það að koma fram á pöntuninni.

Afhendingartími

Rúður sem við eigum á lager er í flestum tilfellum hægt að afgreiða samdægurs. Annars er afhendingartími 1 til 2 virkir dagar.

Í þeim tilvikum þegar við þurfum að sérpanta rúðuna er afhendingartíminn 1 til 2 vikur.




Fyrirspurnir

Ef óskað er nánari upplýsinga um vörur eða þjónustu okkar, vinsamlegast sendið tölvupóst á netfangið framrudur@simnet.is. Við reynum að svara öllum pósti sem okkur berst rafrænt í síðasta lagi næsta virka dag frá móttöku.

Orka ehf. - Stórhöfða 37 - 110 Reykjavík - Sími 586 1900 - Fax 586 1903 Netfang framrudur@simnet.is - Veffang www.bilrudur.is
© 2008 Uppsetning og hönnun Hýsir.is