Í september fóru starfsmenn Orku ásamt nokkrum viðskiptavinum í hörku fjórhjólaferð inná Landmannaafrétt. Gist var í Glaðheimum þar sem Páll ræður ríkjum. Á laugardeginum var ekið að Langasjó og farinn hringurinn með honum ásamt fleiri útúrdúrum. Um kvöldið var svo slegið upp heljar grillveislu sem ekki verður fjallað um hér